Karfa

Karfan þín er tóm

Zero Pro Pure (B2B)

Pure er nútíma klassík þegar kemur að púttum og approach skotum. Diskurinn var hannaður í samvinnu við Jesper Lundmark og er með afar þægilegu gripi og millidjúpri brún. Hann hefur nánast ekkert „fade“, sem tryggir hámarks nákvæmni í púttunum. Pure heldur hvaða línu sem er í approach skotum, hvort sem þú kastar vinstri, beint eða hægri. Lyftu spilinu á hærra plan nálægt körfunni með Pure.

3
3
-1
1
PLAST
ZERO PRO
Zero Pro er stíft og þétt plast sem er sérstaklega hannað fyrir puttera. Það kemur á óvart hversu gott gripið er miðað við hversu stíft plastið er og endingin er gríðarlega góð. Þessi plastblanda þolir mikið álag og slit en heldur samt áreiðanlegu gripi hring eftir hring.
2.790 kr
Vörunúmer: ZEP-PURE-MIX-B2B

Litur:
Zero Pro Pure (B2B)
Zero Pro Pure (B2B) 2.790 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.