Karfa

Karfan þín er tóm

Zero Pro Mercy (B2B)

Stundum sýnir völlurinn enga miskunn, en þá er gott að grípa í Mercy frá Latitude 64. Hann er með djúpa brún sem gefur honum stöðugt og áreiðanlegt flug. Mercy er fjölhæfur diskur sem virkar fullkomlega í púttin, approach skotin eða sem stuttur driver af teig.

2
4
0
1
PLAST
ZERO PRO
Zero Pro er stíft og þétt plast sem er sérstaklega hannað fyrir puttera. Það kemur á óvart hversu gott gripið er miðað við hversu stíft plastið er og endingin er gríðarlega góð. Þessi plastblanda þolir mikið álag og slit en heldur samt áreiðanlegu gripi hring eftir hring.
2.790 kr
Vörunúmer: ZEP-MERCY-MIX-B2B

Litur:
Zero Pro Mercy (B2B)
Zero Pro Mercy (B2B) 2.790 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.