Karfa

Karfan þín er tóm

Zero Hard Macana (B2B)

Macana er putter fyrir spilara sem vilja hafa „bead“ og djúpa brún. Hann er stöðugur í flugi og virkar jafnt sem púttari eða driver á stuttu brautirnar, enda með gott svif og áreiðanlegan sveig í lokin. Nafnið Macana vísar í forn viðarvopn sem ættbálkar í Mið- og Suður-Ameríku notuðu. Ef þér líður eins og hver einasta flöt sé hálfgerður vígvöllur, þá er Macana diskurinn sem hjálpar þér að vinna baráttuna.

2
5
0
1
PLAST
ZERO
Zero er plast með frábæru gripi sem er notað í púttera. Það er sérvalið til að gefa þér réttu tilfinninguna og öryggið sem þú þarft í stutta spilinu. Þar sem plastið kemur í þremur mismunandi stífleikum, Soft, Medium og Hard þá finna allir eitthvað sem hentar þeim fullkomlega.
2.490 kr
Vörunúmer: ZEH-MACANA-MIX-B2B

Litur:
Zero Hard Macana (B2B)
Zero Hard Macana (B2B) 2.490 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.