


VIP Warship
VIP WARSHIP
Warship er frábær Midrange diskur sem mætir þörfum flestra spilara og er hannaður til að vera einstaklega meðfærilegur óháð getustigi. Hann liggur mjög vel í hendi og heldur beinni línu af miklu öryggi en þetta er hraðasti Midrange diskurinn í vörulínu Westside og býður upp á ótrúlegt svif. Þeir sem kasta fast munu upplifa að hann flýgur beint með mikilli stjórn á meðan þeir sem kasta á minni hraða fá disk sem heldur línunni lengi og klárar svo með mjúkum og fyrirsjáanlegum sveig í lokin.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.




Westside Discs














