


VIP Tursas
VIP TURSAS
Tursas er meðfærilegasti Midrange diskurinn frá Westside og er hannaður með hinn almenna spilara í huga til að gera frisbígolfið enn skemmtilegra. Hann hjálpar þér að ná góðum anhyzer köstum á meðan þú ert að læra tökin á íþróttinni og hentar sérstaklega vel fyrir börn þar sem hann er grynnri en flestir aðrir Midrange diskar á markaðnum. Lengra komnir spilarar geta nýtt hann í nákvæm anhyzer köst af stuttu færi en þeir sem kasta ekki jafn hratt munu upplifa að Tursas svífur beint og fylgir línunni sinni svo lengi sem hann er á lofti.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.




Westside Discs














