Karfa

Karfan þín er tóm

VIP Moonshine Sword (B2B)

Sword er einn af notendavænni driverum Westside og hefur lengi verið vinsæll meðal spilara á mismunandi stigum. Diskurinn flýgur beint og heldur þeirri stefnu sem honum er gefin, með stöðugum endi. Fyrir reynda spilara nýtist hann vel í löng og fyrirsjáanleg köst, en þeir sem kasta hægar fá meiri lengd án þess að missa nákvæmni. Sword er góður kostur þegar leitað er að áreiðanlegum driver sem auðvelt er að treysta.

12
5
-0.5
2
PLAST
VIP
Þetta er hágæða og afar endingargott plastefni sem skilar framúrskarandi árangri við allar aðstæður en VIP plastið er gegnsætt og heldur flugeiginleikum sínum og áreiðanleika óbreyttum í mjög langan tíma. Það hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref sem og atvinnumönnum og má geta þess að Opto plastið frá Latitude 64 er nánast eins og VIP plastið frá Westside enda er hér um að ræða efni sem þolir mikið álag án þess að missa gæðin.
SÉRKENNI
MOONSHINE
Moonshine plastið býr yfir sjálflýsandi eiginleikum sem gera það kjörið fyrir frisbígolf eftir að rökkva tekur. Með því að lýsa á diskinn með öflugu vasaljósi eða UV-ljósi hleður þú plastið svo það lýsi skært í myrkrinu, sem auðveldar leitina til muna án þess að fórna upprunalegum flugeiginleikum disksins. Frá og með árinu 2023 hefur verið notuð ný og endurbætt Moonshine 2.0 blanda sem skilar enn bjartari og langvarandi lýsingu en áður þekkist.
4.290 kr
Vörunúmer: VIP-SWORD-MO

Litur:
VIP Moonshine Sword (B2B)
VIP Moonshine Sword (B2B) 4.290 kr

Westside Discs

Westside Discs var stofnað árið 2009 í samstarfi við Latitude 64 og sækir innblástur í veður og aðstæður á Norðurlöndum. Frá upphafi hefur áherslan verið á áreiðanlegt flug og diska sem standa sig vel í krefjandi aðstæðum. Með djarfri nálgun og sterkri tengingu við frisbígolfsamfélagið hefur Westside Discs skapað sér skýra sérstöðu og er í dag hluti af stærri heild innan íþróttarinnar, án þess að missa tengslin við uppruna sinn.