
VIP Moonshine Shield (B2B)
3
3
0
1
PLAST
VIP
Þetta er hágæða og afar endingargott plastefni sem skilar framúrskarandi árangri við allar aðstæður en VIP plastið er gegnsætt og heldur flugeiginleikum sínum og áreiðanleika óbreyttum í mjög langan tíma. Það hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref sem og atvinnumönnum og má geta þess að Opto plastið frá Latitude 64 er nánast eins og VIP plastið frá Westside enda er hér um að ræða efni sem þolir mikið álag án þess að missa gæðin.
SÉRKENNI
MOONSHINE
Moonshine plastið býr yfir sjálflýsandi eiginleikum sem gera það kjörið fyrir frisbígolf eftir að rökkva tekur. Með því að lýsa á diskinn með öflugu vasaljósi eða UV-ljósi hleður þú plastið svo það lýsi skært í myrkrinu, sem auðveldar leitina til muna án þess að fórna upprunalegum flugeiginleikum disksins. Frá og með árinu 2023 hefur verið notuð ný og endurbætt Moonshine 2.0 blanda sem skilar enn bjartari og langvarandi lýsingu en áður þekkist.
SHIELD
Shield er pútter sem tekur næsta skref upp á við frá Swan og býður upp á aukinn stöðugleika. Hann er hannaður með dálítið þykkari brún og lítinn „bead“ sem gefur gott grip og mikla stjórn í hverju kasti. Þegar kastað er af stuttu færi heldur hann stöðugri og áreiðanlegri línu, en í púttum flýgur hann beint í keðjurnar og gefur spilaranum mikið sjálfstraust á flötinni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

VIP Moonshine Shield (B2B)
4.290 kr

Westside Discs












