
VIP Moonshine King (B2B)
KING
King er vinsælasti driverinn frá Westside og jafnframt sá diskur sem drífur allra lengst en hann hentar spilurum á öllum getustigum og er sérstaklega hannaður til að hjálpa meðalspilaranum að ná hámarksdrægni í löngum köstum. Diskurinn liggur vel í hendi og er með hátt og kúpt efra byrði sem fangar loftið svo hann svífur ótrúlega vel og nær meiri vegalengd en flestir aðrir diskar. Lengra komnir spilarar nota hann gjarnan þegar þeir þurfa að ná sem allra lengst eða fyrir rúlluköst á meðan þeir sem kasta styttra munu loksins sjá diskinn fljúga þá línu sem þá hefur alltaf dreymt um á brautinni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Westside Discs












