
VIP Harp (B2B)
HARP
Harp er áreiðanlegasti diskurinn hjá Westside þegar kastað er af stuttu færi og er hann hannaður til að standast hvaða aðstæður sem er. Hann heldur línunni sinni ótrúlega vel í vindi og fyrir lengra komna spilara gæti þetta verið eini diskurinn sem þeir þurfa á að halda af stuttu færi þar sem hann þolir mikinn kraft og endar alltaf með öruggum sveig. Þeir sem kasta á minni hraða fá þarna sinn yfirstöðugasta disk til að nálgast körfuna sem tryggir hámarks öryggi í hverju kasti.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Westside Discs












