Karfa

Karfan þín er tóm

VIP Air Maiden (B2B)

Maiden er frábær kostur ef þú leitar að hlutlausum pútter sem er þunnur í hendi og liggur því einstaklega vel hjá flestum. Hann kemur verulega á óvart með því hversu vel hann heldur línunni án þess að velta yfir og klárar flugið með mjög litlum sveig í lokin. Þetta gerir Maiden að áreiðanlegum félaga fyrir þá sem vilja beint og fyrirsjáanlegt flug jafnt í púttum sem og í lengri skotum að körfunni.

3
4
0
1
PLAST
VIP AIR
VIP Air sameinar kosti hins hágæða VIP plasts og Air tækninnar en þetta gegnsæja og afar endingargóða plastefni heldur áreiðanleika sínum í langan tíma þótt þyngdin á disknum hafi verið lækkuð. Með því að beina loftbólum innan í plastinu að miðju brúnarinnar næst meira svif án þess að fórna höggþoli í kanti eða botni svo diskurinn þolir vel álag þrátt fyrir léttleikann. Þar sem diskarnir eru léttari en vanalega má búast við að þeir séu aðeins óstöðugri í vindi en á móti færðu aukna vegalengd með minni krafti sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum sem vilja hámarka flugið.
3.490 kr
Vörunúmer: VIP-AIR-MAIDEN

Litur:
VIP Air Maiden (B2B)
VIP Air Maiden (B2B) 3.490 kr

Westside Discs

Westside Discs var stofnað árið 2009 í samstarfi við Latitude 64 og sækir innblástur í veður og aðstæður á Norðurlöndum. Frá upphafi hefur áherslan verið á áreiðanlegt flug og diska sem standa sig vel í krefjandi aðstæðum. Með djarfri nálgun og sterkri tengingu við frisbígolfsamfélagið hefur Westside Discs skapað sér skýra sérstöðu og er í dag hluti af stærri heild innan íþróttarinnar, án þess að missa tengslin við uppruna sinn.