




Vallon Crossroads Hvít með Silfurlinsu Skíðagleraugu
Vallon Crossroads eru vönduð skíðagleraugu sem eru hönnuð fyrir krefjandi aðstæður í fjallinu. Gleraugun eru með ZEISS Toric linsum sem veita vítt sjónsvið, skýra sýn og draga úr bjögun út til jaðra linsunnar. Hvít umgjörð og silfurlituð speglalinsa gefa gleraugunum fágað útlit, en linsan hentar sérstaklega vel í sól og björtu veðri. Brúnn grunnlitur linsunnar eykur birtuskil og auðveldar að greina ójöfnur í snjónum. Með fylgir fjólublá aukalinsa fyrir hálfskýjað veður og breytileg birtuskilyrði.
PolarLock linsuskiptakerfið notar segla ásamt vélrænni öryggislæsingu sem heldur linsunni tryggilega á sínum stað og gerir linsuskipti fljótleg og einföld. Móðuvörn á innri linsu dregur úr móðumyndun og þriggja laga svampbólstrun veitir þægindi við langvarandi notkun. Sveigjanleg TPU umgjörð og breið, stillanleg ól með sílikonhúð að innan hjálpa til við að halda gleraugunum stöðugum, einnig með skíðahjálmi. Crossroads eru með 100% UV400 vörn og þeim fylgja bæði örtrefjapoki og sérstakt hulstur fyrir aukalinsuna.
EIGINLEIKAR
- ZEISS Toric linsur með víðu sjónsviði
- Tvær skiptanlegar linsur fylgja með
- Silfurlituð speglalinsa: Flokkur 3, 15% ljósgegndræpi (VLT)
- Fjólublá aukalinsa: Flokkur 2, 31% ljósgegndræpi (VLT)
- PolarLock segulfesting með vélrænni öryggislæsingu
- 100% UV400 vörn
- Höggþolnar pólýkarbónatlinsur frá ZEISS
- Móðuvörn á innri linsu
- Brúnn grunnlitur á silfurlitaðri speglalinsu sem eykur birtuskil
- Sveigjanleg TPU umgjörð
- Þriggja laga svampbólstrun
- 50 mm breið stillanleg ól með sílikonhúð að innan
- Henta vel með skíðahjálmum
- Stærð: Medium/Large
- Breidd umgjarðar: 176 mm
- Hæð umgjarðar: 98 mm
- Örtrefjapoki og hulstur fyrir aukalinsu fylgja með
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.






Skýr sýn við ólíkar aðstæður

Fljótleg og örugg linsuskipti

Þægindi allan daginn í fjallinu

Vallon














