Karfa

Karfan þín er tóm

Vallon Crossroads - Hvít

Vallon Crossroads eru skíðagleraugu með ZEISS Toric linsum sem veita skýra sýn og vítt sjónsvið við fjölbreyttar aðstæður í fjallinu. Græna speglalinsan er í flokki 3 með 12% ljósgegndræpi og hentar sérstaklega vel í björtu veðri. Með fylgir fjólublá aukalinsa í flokki 2 með 31% ljósgegndræpi sem eykur birtuskil þegar skýjað er eða birtuskilyrði breytast.

PolarLock segulfesting með öryggislæsingu gerir auðvelt að skipta á milli linsa eftir veðri og tryggir að þær haldist vel á sínum stað. Gleraugun eru með 100% UV400 vörn, móðuvörn og þriggja laga svampbólstrun sem veitir góð þægindi allan daginn. Sveigjanleg umgjörð og breið, stillanleg ól gera Crossroads að góðum kosti fyrir bæði skíði og snjóbretti.

Icon

Linsan er með VLT 12% - Þau henta vel í mjög björtu veðri og sól.

Extra Lens Icon

Aukalinsa er með VLT 31% - Hentar vel í hálfskýjuðu veðri og við breytileg birtuskilyrði.

27,992 kr Verð34,990 kr
Vörunúmer: 50211-B0GR

Skýr sýn við ólíkar aðstæður

ZEISS Toric linsurnar í Crossroads eru hannaðar til að veita vítt sjónsvið og skýra sýn, jafnvel út til jaðra linsunnar. Sérstök lögun þeirra dregur úr sjónbjögun og auðveldar að greina breytingar í landslaginu. Græna speglalinsan með brúnum grunnlit hentar vel í björtu veðri og eykur birtuskil í snjónum. Þegar ský dregur fyrir sólina eða birtan verður flatari er hægt að skipta yfir í fjólubláu aukalinsuna sem hleypir meira ljósi í gegn og hjálpar til við að greina ójöfnur í snjónum.

Fljótleg og örugg linsuskipti

Birtuskilyrði geta breyst hratt í fjallinu og því skiptir máli að geta aðlagað gleraugun að aðstæðum. PolarLock linsuskiptakerfið notar segla sem leiða linsuna á réttan stað og vélræna öryggislæsingu sem heldur henni tryggilega fastri. Þannig er hægt að skipta á milli linsa á einfaldan hátt án þess að þurfa að skipta um gleraugu. Tvær ZEISS linsur fylgja með og veita möguleika á að velja þá linsu sem hentar best hverju sinni, hvort sem sólin skín eða skýjað er.

Þægindi allan daginn í fjallinu

Crossroads eru hönnuð til að sitja þægilega, jafnvel þegar löngum tíma er varið á skíðum eða snjóbretti. Þriggja laga svampbólstrun liggur mjúklega að andlitinu og sveigjanleg TPU umgjörðin aðlagast vel. Breið, stillanleg ól með sílikonhúð að innan heldur gleraugunum stöðugum yfir skíðahjálminum, á meðan móðuvörn á innri linsu hjálpar til við að viðhalda skýrri sýn. Klassísk hönnun Vallon og vönduð efni gera Crossroads að góðum valkosti fyrir þá sem vilja áreiðanleg skíðagleraugu fyrir breytilegt fjallaveður.

Vallon

Vallon er sjálfstætt gleraugnamerki sem á rætur sínar í skíðamenningu svissnesku Alpanna. Vörumerkið var stofnað af tveimur sænskum bræðrum sem sóttu innblástur í klassíska hönnun skíðagleraugna og sólgleraugna frá fyrri áratugum.
Vallon leggur áherslu á vandaðar linsur, endingargóð efni og tímalausa hönnun. Úrvalið nær yfir skíðagleraugu og sólgleraugu fyrir fjölbreytta útivist, allt frá skíðaferðum og fjallgöngum til siglinga og daglegrar notkunar. Gleraugun eru hönnuð með það að markmiði að veita skýra sýn, góða vörn og þægindi við ólíkar aðstæður.