


Tournament Prince
13
5
0
3
PLAST
TOURNAMENT
Tournament er þróuð útgáfa af VIP plasti með viðbættum tæknilegum efnum. Plastið er ógegnsætt, en jafn slitsterkt og VIP, með aðeins betra grip. Diskar í Tournament plasti halda flugeiginleikum sínum vel yfir tíma og henta jafnt í æfingar sem keppni. Tournament plastið er mjög líkt Gold Line plastinu frá Latitude 64.
TOURNAMENT PRINCE
Prince er nýr og mjög stöðugur hraðdiskur í línu Westside. Diskurinn var þróaður í samstarfi við Matt Orum með það að markmiði að bjóða upp á kraftmikinn driver sem ræður við mikinn hraða og skilar mikilli lengd. Hann fyllir bilið á milli Adder og Sword og hentar vel þeim sem vilja stöðugan disk sem heldur fluginu jafnvel þegar kastað er fast. Prince er diskur fyrir þá sem vilja treysta á afl og stjórn í löngum köstum.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.



Tournament Prince
3,490 kr

Westside Discs














