
Tournament Ring Bear (B2B)
8
6
-0.5
2.5
PLAST
TOURNAMENT
Tournament er þróuð útgáfa af VIP plasti með viðbættum tæknilegum efnum. Plastið er ógegnsætt, en jafn slitsterkt og VIP, með aðeins betra grip. Diskar í Tournament plasti halda flugeiginleikum sínum vel yfir tíma og henta jafnt í æfingar sem keppni. Tournament plastið er mjög líkt Gold Line plastinu frá Latitude 64.
SÉRKENNI
RING
Ring Collection er sérstök hönnunarlína frá Westside Discs þar sem goðsagnir og táknræn merking hringsins um órjúfanlega einingu og heild eru höfð að leiðarljósi. Þetta einstaka útlit er dregið fram með Orbit tækninni þar sem tveimur litum er blandað saman í framleiðslunni þannig að hver einasti diskur fær sinn eigin karakter og ekkert mynstur er nákvæmlega eins. Ring Collection er þannig miklu meira en bara útlit því þetta er virðingarvottur við sögu og samfélag diskagolfsins sem er hannaður fyrir þá sem vilja skerfa sig úr og mæta á brautina með disk sem sameinar tímalausa hönnun og nútímalega tækni.
BEAR
Bear er fairway driver sem er hannaður með stjórn í huga. Fyrir reynda spilara flýgur hann hlutlaust með örlitlum stöðugleika og heldur sér vel þegar kastað er af meiri krafti. Hann hefur meiri mótstöðu gegn krafti en Stag, sem gerir hann traustari í krefjandi köstum. Bear ræður við mismunandi kastkraft og hentar vel þegar nákvæmni skiptir meira máli en hreinn hraði.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Tournament Ring Bear (B2B)
3.790 kr

Westside Discs












