
SPONGEBOB SQUAREPANTS – SPONGE BOB MATES HJÓLABRETTI
Hydroponic og SpongeBob Squarepants hafa tekið höndum saman í opinberu samstarfi og þetta 8″ hjólabretti er hluti af því. Það hentar vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á bretti og þeim sem vilja kveikja aftur í gömlum brettaáhuga.
Brettið er selt samsett og tilbúið til notkunar. Með því fylgja gripteip, öxlar í stærð sem passar brettinu, fjögur hjól með hröðum legum og rærnar sem halda öllu saman. Þú þarft því ekki að velja og kaupa íhlutina hvern í sínu lagi áður en þú kemst af stað.
Sjálft brettið er úr sjö laga kanadískum Hard Rock hlyni sem er límdur saman með epoxýkvoðu. Íhvolfunin (concave) er miðlungs.
Stærð og búnaður
- Breidd: 8″ (20,3 cm)
- Lengd: 32″ (81,3 cm)
- Hjólhaf: 14″ (35,6 cm)
- Bretti: 7 laga kanadískur Hard Rock hlynur með epoxýkvoðu
- Íhvolfun (concave): Miðlungs
- Öxlar: 133 mm (5,25″)
- Hjól: Fjögur 53 mm hjól, 100A, keilulaga (conical)
- Öxulgúmmí (bushings): 95A
- Legur: Hydroponic ABEC7
- Að auki: Gripteip og rær
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.

Hydroponic














