
LATITUDE 64 SLIM SHOULDER BAG
Taskan frá Latitude 64 fyrir þá sem vilja létta og þægilega tösku undir diskana. Hún er bæði stílhrein og hentug, hvort sem þú ert að taka stuttan hring, æfa þig, eða vilt einfaldlega ekki burðast með fulla keppnistösku.
Taskan rúmar allt að 8 diska sem er nóg fyrir helstu línur á vellinum. Hún er gerð úr slitsterku efni og kemur með öllu því helsta sem þú þarft. Hólfi fyrir vatnsbrúsa, þægilegri axlaról og sérstökum vasa fyrir Putter svo hann sé alltaf aðgengilegur. Einnig er rúmgóður vasi fyrir síma, lykla og önnur verðmæti.
EIGINLEIKAR
- Efni: Sterkt og endingargott Nylon efni (600D Poly Oxford)
- Rými: Pláss fyrir allt að 8 diska
- Putter: Aðgengilegur vasi framan á með Latitude 64 merki
- Geymsla: Rennilásavasi fyrir síma, veski og lykla
- Þægindi: Stillanleg axlaról með bólstrun
- Drykkjarhólf: Vasi fyrir vatnsbrúsa eða dós
- Stærð: 25 cm x 33 cm x 12 cm
- Þyngd: Aðeins 425 grömm
Athugið: Diskar og vatnsbrúsi fylgja ekki með töskunni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Latitude 64












