SFR STOMPER STILLANLEGIR HJÓLASKAUTAR
SFR Stomper er fullkominn fyrir litla fætur! Hann er breiðari að aftan sem gerir það að verkum að afturhjólin veita aukinn stöðugleika. Þess vegna eru þeir fullkomnir fyrir þá sem eru að prófa að skauta í fyrsta sinn. Það er auðvelt að stilla stærðina á þeim: Þú ýtir einfaldlega á takkann og rennir skautanum annað hvort fram eða aftur til að stækka eða minnka skautann. Þannig geta skautarnir stækkað með barninu. Á þeim eru líka smellur sem þýðir að það er leikur einn að setja þá á sig.
Upplýsingar
- Fóturinn situr neðarlega sem þýðir að þyngdarpunkturinn færist neðar. Það er tilvalið fyrir byrjendur á skautum.
- Báðir skautarnir eru með bremsu aftan á sem situr lágt en það hjálpar byrjendum að ná tökum á listinni.
- Fínstillir með snúningslás gerir þér kleift að stilla í hálfar skóstærðir líka. Þannig að þeir passa alltaf vel.
- Fóðrið er hægt að taka úr og þvo
Stell
Fast stell til að auka stöðugleika
Hjólastell
Fast hjólastell til að auka stöðugleika
Hjól
Hjól steypt úr pólýúretani, sem sitja utar að aftan til að auka stöðugleika
Legur
Skautalegur
Stoppari
Stopparar að aftan til að auka stöðugleika
Stærðir
Stillanlegar stærðir: 23-27, 28-32
Mesta þyngd notenda
20 kg
Fæst líka í bláum.