Karfa

Karfan þín er tóm

S-Line Swirls Vanguard - Creator Series (B2B)

Vanguard færir áreiðanleika fairway drivera upp á nýtt stig. Formið minnir um margt á FD1 eða FD3 en rúnnaðri kantar gera það að verkum að hann liggur mun betur í hendi. Vanguard er hannaður fyrir kraftmikil köst og er diskur sem þú getur treyst á þegar mest á reynir. Hann heldur beinni línu lengi á miklum hraða áður en hann tekur rólegan og öruggan sveig í lokin. Hann vinnur líka frábærlega með þeim hornum sem þú gefur honum því hvort sem kastað er í „hyzer“ eða „anhyzer“ þá skilar hann sér alltaf áreiðanlega til baka.

Creator Series
9
5
0
2
PLAST
S-LINE
S-Line er mjúkt og endingargott plast með þægilega áferð og gott grip. Það brotnar hægt inn, heldur stöðugu flugi og veitir örugga tilfinningu í hendi, jafnvel í köldu eða röku veðri. Þetta plast hentar vel fyrir spilara sem vilja jafnvægi milli endingar og grips.
SÉRKENNI
SWIRL
Swirl einkennist af blöndu lita sem renna saman og mynda einstakt hringiðumynstur á disknum. Þessi áferð gefur hverjum diski lifandi og sérstakt útlit þar sem litirnir fléttast saman í fallegum sveipum, sem gerir hvert eintak einstakt.
4.190 kr
Vörunúmer: S-LINE-VANGUARD-S/-B2B

Litur:
S-Line Swirls Vanguard - Creator Series (B2B)
S-Line Swirls Vanguard - Creator Series (B2B) 4.190 kr

Discmania

Discmania er alþjóðlegt frisbígolfmerki sem stofnað var árið 2006 af finnskum frumkvöðli. Þeir framleiða diska í eigin verksmiðju í Svíþjóð og reka skrifstofur í Finnlandi og Bandaríkjunum. Með vörulínum eins og Originals, Evolution og Active býður Discmania upp á fjölbreytt úrval fyrir leikmenn á öllum getustigum. Þeir leggja áherslu á nýsköpun og gæði og hafa markað sér sess sem eitt af leiðandi vörumerkjum í frisbígolfinu. Slagorð þeirra er „Reinvent Your Game“.