



S-Line PD
10
4
0
3
PLAST
S-LINE
S-Line er mjúkt og endingargott plast með þægilega áferð og gott grip. Það brotnar hægt inn, heldur stöðugu flugi og veitir örugga tilfinningu í hendi, jafnvel í köldu eða röku veðri. Þetta plast hentar vel fyrir spilara sem vilja jafnvægi milli endingar og grips.
PD
PD býður upp á kraft og stjórn í sama diski og er líklega besti alhliða driverinn fyrir lengra komna og atvinnumenn. Hann er ein vinsælasta hönnunin frá Discmania fyrr og síðar. PD er dálítið „overstable“ fyrir flesta spilara til að byrja með en verður gríðarlega fjölhæfur eftir því sem hann eyðist og mýkist upp. Margir spilarar eru með nokkra PD diska í töskunni á mismunandi stigum til að eiga svör við öllum gerðum kasta.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.




S-Line PD
3,990 kr

Discmania














