Karfa

Karfan þín er tóm

Retro Burst Keystone

Góður stuttur leikur heldur öllu saman og þar kemur Keystone sterkur inn. Hann er með slétta, rúnnaða brún og þægilega dýpt sem gefur gott og öruggt grip. Keystone er understable og flýgur beint, jafnvel við lítinn kraft, sem gerir hann frábæran í pútt og stutt köst að körfu. Traustur putter til að byggja upp leikinn í kringum körfuna.

2
5
-1
1
PLAST
RETRO
Retro plastið veitir frábært grip og flugeiginleika sem henta byrjendum einstaklega vel, og er því fullkominn valkostur fyrir fyrsta diskinn þinn. Þetta er jafnframt hagkvæmasta plastið frá Latitude 64, sem völ er á. Eftir mikla eftirspurn eftir diskum sem „slitna til“ (break in) og eldast hraðar til að ná ákveðnu flugi, leiddu ítarlegar prófanir að þessari blöndu sem hefur verið nefnd Retro.
1.990 kr
Vörunúmer: 105234

Litur:

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.