Karfa

Karfan þín er tóm

Retro Burst Fuse

Fuse er einn fjölhæfasti Midrange diskurinn frá Latitude 64 fyrr og síðar. Hann var hannaður í samstarfi við sænsku goðsögnina Jesper Lundmark og býður upp á gríðarlega stöðugt og fyrirsjáanlegt flug. Fuse er þekktur fyrir að geta haldið löngum „anhyzer“ línum með nánast engum sveig í lokin, en hann reynist spilurum líka afar áreiðanlegur í beinum köstum allt að 90-100 metrum. Ef þig vantar disk sem gerir nákvæmlega það sem þú biður hann um, þá er Fuse rétti diskurinn í töskuna.

5
6
-1
0
PLAST
RETRO
Retro plastið veitir frábært grip og flugeiginleika sem henta byrjendum einstaklega vel, og er því fullkominn valkostur fyrir fyrsta diskinn þinn. Þetta er jafnframt hagkvæmasta plastið frá Latitude 64, sem völ er á. Eftir mikla eftirspurn eftir diskum sem „slitna til“ (break in) og eldast hraðar til að ná ákveðnu flugi, leiddu ítarlegar prófanir að þessari blöndu sem hefur verið nefnd Retro.
SÉRKENNI
BURST
Burst áferðin lífgar upp á diskana með blöndu af tveimur litum sem renna saman og mynda geislandi rákir út frá miðju. Þessi tækni tryggir að hver einasti diskur fær sitt eigið séstaka mynstur og litasamsetningu, sem þýðir að engir tveir diskar eru nákvæmlega eins og útlitið getur verið breytilegt á milli eintaka.
1.990 kr
Vörunúmer: 104776

Litur:
Retro Burst Fuse
Retro Burst Fuse 1.990 kr