


Retro Burst Diamond
8
6
-3
1
PLAST
RETRO
Retro plastið veitir frábært grip og flugeiginleika sem henta byrjendum einstaklega vel, og er því fullkominn valkostur fyrir fyrsta diskinn þinn. Þetta er jafnframt hagkvæmasta plastið frá Latitude 64, sem völ er á. Eftir mikla eftirspurn eftir diskum sem „slitna til“ (break in) og eldast hraðar til að ná ákveðnu flugi, leiddu ítarlegar prófanir að þessari blöndu sem hefur verið nefnd Retro.
SÉRKENNI
BURST
Burst áferðin lífgar upp á diskana með blöndu af tveimur litum sem renna saman og mynda geislandi rákir út frá miðju. Þessi tækni tryggir að hver einasti diskur fær sitt eigið séstaka mynstur og litasamsetningu, sem þýðir að engir tveir diskar eru nákvæmlega eins og útlitið getur verið breytilegt á milli eintaka.
RETRO BURST DIAMOND
Diamond er einn vinsælasti diskurinn fyrir byrjendur og er frábær valkostur fyrir börn og spilara með minni kasthraða. Hann er framleiddur í léttari þyngdum og með mjóa brún, sem gerir hann auðveldan í stjórnun og þægilegan í hendi. Með undirstöðugum flugferli og góðu svifi hjálpar hann nýjum spilurum að ná meiri lengd með minni fyrirhöfn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af mikilli lokabeygju.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.



Retro Burst Diamond
1.990 kr

Latitude 64












