


PROLIMIT FLARE BLAUTBÚNINGUR FREEZIP 4/3
Prolimit Fusion Freezip 3/2 mm er léttur og sveigjanlegur blautbúningur sem hentar einstaklega vel fyrir vatnaíþróttir yfir sumartímann. Hann veitir gott jafnvægi milli einangrunar, hreyfigetu og þæginda. Búningurinn er framleiddur úr NaturePrene2®, sem er 100% neoprene-laust efni, unnið með sjálfbærni að leiðarljósi. Airflex efni og Quantum Stretch fóður gera hann einstaklega lipran í hreyfingum, hvort sem þú ert á siglinganámskeiði, kajak eða brimbretti.
Búningurinn er 3 mm að þykkt á miðhluta líkamans og 2 mm á handleggjum og fótleggjum sem tryggir góða einangrun ásamt frábærri hreyfigetu. Saumarnir eru límdir og blindsaumaðir (GBS) sem heldur vatni úti og eykur endingu. Framanverður YKK Freezip rennilás opnast vel sem gerir það auðvelt að fara í og úr búningnum. Léttur, mjúkur og hannaður með hreyfanleika og náttúruna í huga – tilvalinn félagi í allar sumaræfingar við vatn og sjó.
Helstu eiginleikar
- Þykkt: 3/2 mm
- Efni: Airflex 500+/350+ NaturePrene2®
- Saumar: Límdir og blindsaumaðir (GBS)
- Fóður: Quantum Stretch Lining
- Rennilás: Freezip framanverður
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslun okkar Silfursmára 2, Kópavogi
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.
