


SHOTGUN PRO ICR ADAPTER KIT
Á sumum fjallahjólum liggja bremsu og gírvírar í gegnum stýrisleguna (ICR – Internal Cable Routing). Í þeim tilfellum þarf Shotgun Pro eða Pro EVO barnasætið sérstakan ICR adapter til að passa rétt.
Shotgun Pro ICR Adapter Kit kemur í stað hefðbundinnar framfestingar og gerir þér kleift að festa sætið án þess að skemma vírana. Uppsetningin er einföld og heldur stýrissvæðinu snyrtilegu, á sama tíma og festingin er örugg og stöðug. Adapterinn hentar flestum hjólum með innri víraleiðslu í gegnum stýrisleguna.
PASSAR ÞETTA Á HJÓLIÐ MITT?
Þú þarft aðeins ICR Adapter Kit ef vírarnir fara í gegnum spacera stýrislegunnar
Þú þarft þennan adapter ekki ef:
- hjólið er ekki með innri víraleiðslu.
- vírarnir koma út neðan við efsta lok stýrislegunnar (dust cover).
Adapterinn virkar með flestum ICR kerfum, en áður en þú kaupir ætti að athuga:
- að spacerarnir á hjólinu hafi flatan snertiflöt.
- að staðsetning stýripinna og gata passi við Shotgun spacerinn.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.




Kids Ride Shotgun












