







PIT VIPER BN5000 - THE RASTER
Góð yfirsýn í fjallinu skiptir öllu máli þegar skíðað er í breytilegu færi og birtu. Með Worldwide Vision™ tækninni færðu afar vítt jaðarsjónsvið, á meðan HDPV-linsan dregur fram liti og birtuskil í landslaginu svo ójöfnur í snjónum sjást betur. Móðuvarnarhúðun á linsunni hjálpar svo til við að halda útsýninu skýru allan daginn.
Birtan í brekkunum getur verið fljót að breytast og þá kemur Magic Magnet™ segulkerfið sér vel, en það gerir þér kleift að skipta um linsu á svipstundu. HDPV Smoke aðallinsan er með 14% ljóshleypni (CAT 3) sem hentar vel í björtu veðri, en með gleraugunum fylgir einnig Yellow Snow aukalinsa með 64% ljóshleypni fyrir skýjaða daga, éljagang eða síðdegisferðir í lítilli birtu.
Eiginleikar og linsur
- Linsugerð: Toric-linsa úr pólýkarbónati með móðuvarnarhúðun.
- Aðallinsa: HDPV Smoke með gráum lit þegar horft er í gegnum linsuna.
- Ljóshleypni aðallinsu (VLT): 14% (flokkur CAT 3).
- Meðfylgjandi aukalinsa: Yellow Snow fyrir litla birtu, með 64% ljóshleypni (VLT).
- Worldwide Vision™ fyrir einstaklega vítt jaðarsjónsvið.
- Magic Magnet™ segulkerfi fyrir fljótleg linsuskipti.
Í kassanum
- 1x skíðagleraugu
- 1x aukalinsa fyrir litla birtu (Yellow Snow)
- 1x hart hulstur utan um linsu
- 1x Limpcloth™ hreinsiklútur
Umhirða
Hreinsaðu linsurnar með því að anda heitri gufu á þær og strjúka yfir með meðfylgjandi Limpcloth™ klút, eða notaðu Snake Oil linsuhreinsi (seldur sér). Ekki nota bleikiefni, uppþvottalög, heimilishreinsiefni, saltvatn, sandpappír, svita eða aðra líkamsvökva á linsurnar.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.









Worldwide Vision™

HDPV Smoke linsa

Magic Magnet™

Pit Viper














