
P-Line Glow P2X - Flex 3 - Gannon Buhr PS - 2025 WC (B2B)
Gannon Buhr Premier Series - 2025 World Champion
2
2
0
2
PLAST
P-LINE
P-Line plastið frá Discmania var endurhannað árið 2025 og er nú endingarsterkasta grunnplast sem Discmania hefur framleitt. Það sameinar mjög gott grip, mikla endingu og stöðuga frammistöðu, sem gerir það að frábæru vali fyrir spilara sem vilja örugga tilfinningu í hendi og áreiðanlega hegðun í kasti. Nýja blöndunin þolir mun betur slit án þess að fórna mjúku og aðeins klístruðu gripi sem margir kjósa í grunnplasti. P-Line hentar jafnt í nákvæm approach-köst sem og fyrir púttera sem þurfa að þola mikla og reglulega notkun.
SÉRKENNI
GLOW
Glow plastið er hannað til að lýsa skært í myrkri eftir að það hefur verið hlaðið með ljósi. Þetta gerir diskinn tilvalinn fyrir næturspil eða hringi í íslenska skammdeginu þar sem birta er af skornum skammti.
P2X
P2x er pútter úr Originals línunni sem var þróaður í samstarfi við Gannon Buhr hjá Team Discmania. Hann flýgur beint með örlitlum stöðugleika í lokin og hentar vel bæði í pútt og approach-köst. Áreiðanlegt og fyrirsjáanlegt eðli disksins gerir hann að disk sem þú grípur í aftur og aftur við ólíkar aðstæður. Þegar pressan eykst og allt skiptir máli er P2x pútterinn sem þú getur treyst á.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Discmania












