
Origio Burst Crown (B2B)
3
4
0
1
PLAST
ORIGIO
Origio var þróað með grip í huga. Markmiðið var að búa til plast sem liggur vel í hendi og er auðvelt að kasta og Origio uppfyllir það hlutverk. Plastið gefur mjúka og örugga tilfinningu sem margir kunna vel að meta. Líkt og Prime hjá Dynamic Discs og Retro hjá Latitude 64 færir Origio þessa sömu eiginleika yfir á diska frá Westside og gerir þá enn þægilegri í notkun.
SÉRKENNI
BURST
Burst áferðin lífgar upp á diskana með blöndu af tveimur litum sem renna saman og mynda geislandi rákir út frá miðju. Þessi tækni tryggir að hver einasti diskur fær sitt eigið séstaka mynstur og litasamsetningu, sem þýðir að engir tveir diskar eru nákvæmlega eins og útlitið getur verið breytilegt á milli eintaka.
CROWN
Crown er pútter sem hentar spilurum sem vilja hafa svokallaða brún eða „bead“ neðan á disknum ásamt stöðugu og áreiðanlegu flugi. Með góðu svifi og miklum stöðugleika er hann frábært verkfæri í hvaða tösku sem er þar sem hann skilar sömu niðurstöðunni í hvert einasta skipti. Með því að velja Crown færðu aukið öryggi sem getur skipt sköpum þegar mikið liggur við á flötinni.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Origio Burst Crown (B2B)
2.190 kr

Westside Discs












