Karfa

Karfan þín er tóm

Opto Trident (B2B)

Trident er mjög stöðugur „control driver“ sem svíkur mann ekki í vindi eða þegar kasta þarf öruggum „hyzer“ skotum. Þótt hann sé í flokki drivera er hann frekar hægur, en það er einmitt það sem gerir hann svo sérstakan, hér snýst allt um hámarksstjórn og áreiðanleika. Hann sveigir kröftuglega í lokin og býður upp á fyrirsjáanlega fluglínu sem gerir hann að nauðsynlegum disk í pokann þegar köstin þurfa að vera örugg. Trident er gríðarlega fjölhæfur og hentar jafnt í hefðbundin köst, hliðarköst (forehand) eða yfirhandarköst. Vegna eiginleika sinna er mælt með honum fyrir lengra komna spilara.

6
4
-0.5
3
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
3.290 kr
Vörunúmer: OPT-TRIDENT-MIX-B2B

Litur:
Opto Trident (B2B)
Opto Trident (B2B) 3.290 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.