Karfa

Karfan þín er tóm

Opto River (B2B)

River er einn vinsælasti diskurinn frá Latitude 64 síðasta áratuginn og það er fyrst og fremst gríðarlegu svifi að þakka. Þetta er Fairway Driver sem hentar fullkomlega í nákvæmnisköst þar sem mikil stjórn er nauðsynleg. Það er einstaklega þægilegt að kasta honum og hann passar spilurum á öllum getustigum. Með sínu mikla svifi og mildu sveigju í lokin er River dásamlegur í löng svifmikil köst og stórar „anhyzer“ línur.

7
7
-1
1
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
3.290 kr
Vörunúmer: OPT-RIVER-MIX-B2B

Litur:
Opto River (B2B)
Opto River (B2B) 3.290 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.