



Opto Pioneer
9
3
0
4
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
PIONEER
Pioneer er diskur sem þú getur treyst á þegar það blæs hressilega á teignum. Hann er mjög stöðugur og hannaður til að skila sömu niðurstöðunni í hvert einasta skipti, óháð aðstæðum. Diskurinn er alveg flatur að ofan sem gerir hann sérstaklega þægilegan fyrir þá sem kasta mikið með hliðarkasti (forehand). Pioneer er hraður og sveigir kröftuglega í lokin, sem gerir hann að gríðarlega fjölhæfu tæki til að eiga í töskunni þegar vantar eitthvað áreiðanlegt.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.




Opto Pioneer
3,290 kr

Latitude 64












