
Opto Moonshine Sapphire
10
6
-2
1.5
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
SÉRKENNI
MOONSHINE
Moonshine plastið býr yfir sjálflýsandi eiginleikum sem gera það kjörið fyrir frisbígolf eftir að rökkva tekur. Með því að lýsa á diskinn með öflugu vasaljósi eða UV-ljósi hleður þú plastið svo það lýsi skært í myrkrinu, sem auðveldar leitina til muna án þess að fórna upprunalegum flugeiginleikum disksins. Frá og með árinu 2023 hefur verið notuð ný og endurbætt Moonshine 2.0 blanda sem skilar enn bjartari og langvarandi lýsingu en áður þekkist.
OPTO MOONSHINE SAPPHIRE
Sapphire er fyrsti distance-diskurinn í Easy-to-Use línunni frá Latitude 64°, hannaður til að veita byrjendum og leikmönnum með minni kraft hraða, léttleika og auðvelda stjórn. Hann rennur mjúklega úr hendi með mjórri brún sem hentar sérstaklega vel fyrir smærri hendur. Fullkominn félagi við Diamond, þar sem Sapphire bætir við stöðugleika og hraða í töskuna án þess að fórna stjórn eða gripi.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Opto Moonshine Sapphire
3.890 kr

Latitude 64












