

Opto Moonshine Saint
9
7
-1
2
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
SAINT
Saint er gríðarlega vinsæll „control driver“ sem nýtur mikilla vinsælda jafnt hjá byrjendum sem lengra komnum. Þegar þig vantar disk sem sameinar góða drægni og mikla nákvæmni þá er Saint rétta tækið. Hann svífur einstaklega vel og heldur beinni línu í köstum allt að 100 metrum, með áreiðanlegum og mjúkum endi. Fyrir þá sem vilja aðeins meiri stöðugleika er stóri bróðir hans, Saint Pro, einnig í boði.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Opto Moonshine Saint
3.890 kr

Latitude 64












