
Opto Jade (B2B)
9
6
-2
1
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
JADE
Jade er hannaður með stjórn og áreiðanleika í huga. Hann er aðeins stöðugri en Diamond og hentar vel spilurum sem hafa öðlast ákveðna reynslu en vilja áfram disk sem er auðvelt að kasta. Þar sem Jade er hluti af „Easy to Use“ línunni er hann léttari en margir aðrir diskar, sem gerir það að verkum að hann hentar yngri spilurum og börnum sérstaklega vel. Jade liggur vel í hendi og býður upp á fyrirsjáanlegt flug fyrir þá sem eru að þróa leik sinn og vantar disk sem þolir meiri hraða. Hann heldur horninu sínu vel en þó er hægt að velta honum yfir ef mikið er lagt í kastið, þó hann leiti nánast alltaf til baka og lendi örugglega í lokin.AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Opto Jade (B2B)
3.290 kr

Latitude 64












