
Opto-Ice Sparkle Splash Diamond - Retailer Exclusive (B2B)
8
6
-3
1
PLAST
OPTO-ICE
Opto-Ice er hágæða plastblanda sem liggur í stífleika á milli Opto og Opto-X. Plastið er mjög slitsterkt og heldur eiginleikum sínum vel í krefjandi aðstæðum. Í samanburði við hefðbundið Opto gefur Opto-Ice aðeins overstable flug, sem hentar vel þegar meiri stöðugleika og áreiðanleika er þörf.
SÉRKENNI
SPLASH
Splash einkennist af flottu slettumynstri sem kemur í fjölbreyttum litasamsetningum. Engir tveir diskar eru eins, þar sem hver og einn býr yfir sínum eigin sérkennum og einstaka útliti innan mynstursins.
DIAMOND
Diamond er einn vinsælasti diskurinn fyrir byrjendur og er frábær valkostur fyrir börn og spilara með minni kasthraða. Hann er framleiddur í léttari þyngdum og með mjóa brún, sem gerir hann auðveldan í stjórnun og þægilegan í hendi. Með undirstöðugum flugferli og góðu svifi hjálpar hann nýjum spilurum að ná meiri lengd með minni fyrirhöfn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af mikilli lokabeygju.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Latitude 64












