Karfa

Karfan þín er tóm

Opto Anchor

Anchor er stöðugur Midrange sem er hannaður til að þola mikinn kraft án þess að missa línuna sína. Hann er áreiðanlegur í vindi og býður upp á fyrirsjáanlegan sveig í lok flugsins, sem gerir hann að frábæru tæki fyrir nákvæmnisköst að körfunni. Diskurinn situr þægilega í hendi og gefur manni sjálfstraust í hverju kasti, hvort sem hann er notaður í stutt „drive“ af teig eða „approach“ skot. Anchor er traustur vinnuhestur sem skilar sínu í hvert skipti sem maður þarf að geta treyst því að diskurinn fari nákvæmlega þá leið sem lagt var upp með.

5
4
0
3
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum. Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika. Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.
3.290 kr
Vörunúmer: 17077

Litur:
Opto Anchor
Opto Anchor 3.290 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.