
Neo Soft Spore (B2B)
1
7
0
1
PLAST
NEO SOFT
NEO Soft er mýkri og sveigjanlegri útgáfa af hefðbundnu NEO plasti. Gripið og útlitið er það sama, en plastið er meira gúmmíkennt sem gerir diskinn þægilegri í hendi og auðveldari í meðförum. Þegar diskurinn lendir helst hann betur á staðnum og rennur síður áfram, sem er sérstaklega kostur í nákvæmum köstum og þegar stjórn nálægt körfu skiptir máli.
SPORE
Spore er léttur og skemmtilegur diskur úr Evolution línunni sem svífur auðveldlega áfram. Hann er frábær í upphitun fyrir hring, til að kasta á milli vina eða í mjúk og stutt köst að körfu á vellinum. Þó hraðinn sé sambærilegur við pútter er Spore dýpri í hendi og flýgur beinna með minni fyrirhöfn, sem gerir hann einstaklega aðgengilegan og skemmtilegan í notkun.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Discmania












