Karfa

Karfan þín er tóm

Neo Origin

Origin úr Evolution línunni er midrange diskur með aðeins minna þvermál en gríðarlega möguleika. Hann er frekar „understable“ á miklum hraða og er því fullkominn í löng „turnover“ köst eða nákvæmar beinar línur þegar dregið er aðeins úr kraftinum. Hann hentar sérstaklega vel í meðvindi, á þröngum skógarbrautum og þegar það er logn á vellinum. Þetta er diskur sem spilarar á öllum getustigum ættu að hafa í töskunni.

5
5
-1
1
PLAST
NEO
Neo er endingargott og sterkt plast með slétta, mattar áferð og öruggt grip. Það brotnar hægt inn og heldur stöðugu flugi, með tilfinningu sem liggur þægilega í hendi án þess að verða klístrað.
3.490 kr
Vörunúmer: 100159

Litur:
Neo Origin
Neo Origin 3.490 kr

Discmania

Discmania er alþjóðlegt frisbígolfmerki sem stofnað var árið 2006 af finnskum frumkvöðli. Þeir framleiða diska í eigin verksmiðju í Svíþjóð og reka skrifstofur í Finnlandi og Bandaríkjunum. Með vörulínum eins og Originals, Evolution og Active býður Discmania upp á fjölbreytt úrval fyrir leikmenn á öllum getustigum. Þeir leggja áherslu á nýsköpun og gæði og hafa markað sér sess sem eitt af leiðandi vörumerkjum í frisbígolfinu. Slagorð þeirra er „Reinvent Your Game“.