







MONBENTO MB POP VATNSBRÚSI
MB Pop frá monbento er nettur og hitaeinangraður vatnsbrúsi sem hentar jafnt fyrir daglega notkun sem útivist og ferðalög. Brúsinn er úr ryðfríu stáli með tvöföldum veggjum sem halda drykkjum heitum eða köldum í allt að 12 klukkustundir. Með 360 ml rúmmáli og léttri hönnun er þægilegt að taka hann með í skólann, á æfingar, í gönguferðir eða hvert sem dagurinn leiðir þig.
MB Pop er með þægilegum drykkjarstút og loki sem opnast með einum hnappi, svo auðvelt er að fá sér að drekka á ferðinni. Öryggislæsing kemur í veg fyrir að lokið opnist óvart og þéttingin ver gegn leka í bakpokanum. Brúsinn er hannaður fyrir bæði börn frá 6 ára aldri og fullorðna og er góður kostur fyrir þá sem vilja endingargóðan og handhægan vatnsbrúsa fyrir daglegt amstur og útivist.
EIGINLEIKAR
- Rúmmál: 360 ml
- Stærð: 18,6 x 6,5 x 6,5 cm
- Þyngd: 192 g
- Heldur drykkjum heitum eða köldum í allt að 12 klukkustundir
- Tvöfaldir veggir með hitaeinangrun
- Drykkjarstútur sem auðvelt er að drekka úr
- Lok sem opnast með einum hnappi
- Öryggislæsing á loki
- Lekavarin hönnun
- Brúsi úr 18/8 ryðfríu stáli
- Lok úr pólýprópýleni (PP) og sílikoni
- Þétting úr sílikoni
- Án BPA samkvæmt gildandi reglugerðum
- Hentar börnum frá 6 ára aldri og fullorðnum
Umhirða:
Mælt er með að þvo brúsann í höndunum með volgu vatni, mildum uppþvottalegi og mjúkum svampi eða bursta. Þrífið lokið og þéttinguna reglulega og leyfið öllum hlutum að þorna vel. Geymið brúsann með opnu loki þegar hann er ekki í notkun.
Forðist grófa svampa, klór og sterk hreinsiefni. Ekki má setja brúsann í örbylgjuofn eða hita hann yfir beinum hita.
Notkun:
Brúsinn hentar fyrir kalda og volga drykki. Samkvæmt notkunarleiðbeiningum monbento má hitastig drykkjarins ekki fara yfir 45°C. Ekki nota fyrir kolsýrða drykki eða mjólkurvörur. Brúsinn hentar ekki börnum yngri en 6 ára.
Efni:
Brúsi: 18/8 ryðfrítt stál.
Lok: Pólýprópýlen (PP) og sílikon.
Þétting: Sílikon.
Án BPA samkvæmt gildandi reglugerðum.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.









Rétt hitastig allan daginn

Einfaldur í notkun

Með í hvert ævintýri

Monbento














