







MONBENTO FERÐAMÁL
Travel Mug frá monbento er hitaeinangrað ferðamál úr ryðfríu stáli sem heldur drykkjum heitum í allt að 5 klukkustundir og köldum í allt að 12 klukkustundir. Hvort sem þú ert á leiðinni í vinnuna, leggur af stað í gönguferð eða ætlar að njóta kaffibolla úti í náttúrunni er ferðamálið tilvalið til að taka uppáhaldsdrykkinn með þér. Tvöfaldir veggir úr ryðfríu stáli viðhalda hitastigi drykkjarins og lekavarið lok tryggir að hægt sé að taka málið með sér í töskunni.
Lokið er með tveimur drykkjaropum sem gera málið hentugt fyrir bæði heita og kalda drykki. Hefðbundið drykkjarop hentar vel fyrir kaffi, te og heitt súkkulaði en innbyggt rör með mjúkum sílikonenda er þægilegt fyrir kalda drykki. Ferðamálið er hannað til að liggja vel í hendi og passar í flesta glasahaldara í bílum. Meðfylgjandi hreinsibursti auðveldar þrif á rörinu og gerir málið þægilegt í daglegri notkun.
EIGINLEIKAR
- Rúmmál: 360 ml (S) eða 600 ml (L)
- Heldur drykkjum heitum í allt að 5 klukkustundir
- Heldur drykkjum köldum í allt að 12 klukkustundir
- Tvöfaldir veggir með hitaeinangrun
- Lekavarið lok
- Tvö drykkjarop fyrir heita og kalda drykki
- Innbyggt drykkjarrör með sílikonenda
- Passar í flesta glasahaldara í bílum
- Hreinsibursti fyrir drykkjarrör fylgir með
- Ílát úr 304 ryðfríu stáli
- Lok úr pólýprópýleni (PP) og sílikoni
- Án BPA samkvæmt gildandi reglugerðum
Umhirða:
Mælt er með að þvo stálílátið í höndunum með volgu vatni, mildum uppþvottalegi og mjúkum svampi til að viðhalda hitaeinangruninni. Lokið má fara í uppþvottavél.
Drykkjarrörið er hægt að fjarlægja og þrífa sérstaklega með meðfylgjandi hreinsibursta. Leyfið öllum hlutum að þorna vel áður en málið er sett saman aftur.
Ekki má setja ferðamálið í örbylgjuofn.
Efni:
Ílát: 304 ryðfrítt stál.
Lok: Pólýprópýlen (PP) og sílikon.
Drykkjarrör: Pólýprópýlen (PP).
Hreinsibursti: Ryðfrítt stál og nælon.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.









Rétt hitastig

Tveir drykkjarmöguleikar

Tilbúið í ferðalagið

Monbento














