





MAXSTER
Fyrir hjólreiðafólk framtíðarinnar
Maxster hjálmurinn frá Cratoni er hannaður fyrir yngstu hjólagarpana, frá fyrstu ferðum í barnastól og yfir í eigin hjólaævintýri. Hann veitir góða vörn þar sem hún skiptir mestu máli og situr þægilega á höfðinu allan daginn.
Hjálmurinn nær vel niður að hnakka og verndar einnig við gagnauga, sem eykur öryggi þegar börn eru á ferðinni. Innbyggt afturljós eykur sýnileika í dimmu eða við erfið birtuskilyrði og gerir barnið sýnilegra í umferðinni.
Létt bygging og mjúk innra byrði gera hjálminn þægilegan í notkun. Góð loftræsting heldur höfðinu svalt og skordýranet að innan verndar gegn óæskilegum gestum á hlýjum dögum.
Stærðin er auðveldlega stillanleg með snúningskerfi sem tryggir að hjálmurinn sitji vel og örugglega á mismunandi höfuðlögum. Maxster er því traustur kostur fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref á hjóli.
Helstu eiginleikar
- Góð vörn við gagnauga og hnakka
- Innbyggt afturljós fyrir betri sýnileika
- Létt og þægileg hönnun
- 14 loftræstiop fyrir gott loftflæði
- Skordýranet sem ver gegn flugum og skordýrum
- Stillanlegt stærðarkerfi sem tryggir að hann sitji rétt
- Mjúkir púðar að innan sem auka þægindi
- Auðvelt að setja á og taka af


















