

LUXURY E5 BACKPACK
Ef þú tekur frisbígolf alvarlega og vilt búnað sem stenst ströngustu kröfur, þá er þetta bakpokinn fyrir þig. Hér er hönnun sem er sniðin að þörfum keppnisspilara og þeirra sem eyða löngum dögum á vellinum. Pokinn sameinar mikið geymslupláss, snjallar lausnir og hámarks þægindi svo þú getir einbeitt þér alfarið að leiknum.
Aðalhólfið rúmar um 20 diska en með því að nýta alla vasa er auðveldlega hægt að koma fyrir yfir 30 diskum. Hann er hannaður með lágan þyngdarpunkt til að standa stöðugur og velta ekki fram fyrir sig, sem er mikill kostur í íslenskri náttúru. Haldari fyrir regnhlíf gerir þér kleift að bera pokann með opna regnhlíf, sem kemur sér vel þegar veðrið er ótryggt. Hér er pláss fyrir allt: diska, handklæði, regngalla, nesti og smáhluti.
EIGINLEIKAR OG GEYMSLA
- Aðalhólf: Rúmar allt að 20 diska með stillanlegu skilrúmi
- Putter: Aðgengilegur hliðarvasi sem tekur 2 diska og vasi fyrir Mini disk
- Efsta hólf: Stórt rými fyrir regngalla eða aukabúnað, auk vasa fyrir 2 diska
- Sími: Vasi með segullokun inni í efsta hólfinu
- Hliðarvasar: Rúmgóðir vasar fyrir smáhluti, hanska og aukadiska
- Drykkjarhólf: Rúmar stóra brúsa (allt að 1,5 lítra)
- Regnhlíf: Festing sem heldur regnhlífinni bæði samanbrotinni og opinni
HÖNNUN OG EFNI
- Þægindi: Bólstraðar axlarólar og bakplata fyrir hámarks þægindi á löngum hringjum
- Botn: Sterkir plastfætur og rakaþolinn botn verja pokann og halda honum stöðugum
- Efni: Slitsterkt 600D Poly Oxford með PVC baki
- Rennilásar: Premium SBS rennilásar sem þola mikið álag
- Stærð: 51 cm x 40 cm x 27 cm
- Þyngd: U.þ.b. 2,8 kg
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.



Latitude 64












