
Lucid Truth (B2B)
5
5
-1
1
PLAST
LUCID
Lucid er hálfgegnsætt og slitsterkt plast sem sameinar fallega áferð og mikla endingu. Það heldur flugeiginleikum sínum vel, jafnvel eftir mikla notkun. Lucid-útgáfur af diskum eru oft aðeins meira overstable en sambærilegar Fuzion-útgáfur, sem gerir þær að góðu vali þegar þú þarft öruggt og stöðugt kast.
TRUTH
Þessi midrange-diskur er hannaður til að vera eins fjölhæfur og mögulegt er. Hann ræður við beinar línur, köst með sveig og styttri eða lengri köst að körfu, bæði lágt undir hindrunum og hátt með mjúkri lendingu. Diskurinn nýtist vel í fjölbreyttum aðstæðum og hefur unnið sér inn traust hjá bæði byrjendum og afreksfólki, enda auðvelt að stjórna fluginu og treysta á útkomuna.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Lucid Truth (B2B)
3.490 kr

Dynamic Discs












