Karfa

Karfan þín er tóm

Lucid Defender

Vandamálið við hröðustu diskana hefur hingað til verið að þeir eru oft of „understable“ en með tilkomu Defender er sá tími liðinn því hér er á ferðinni hraður og virkilega stöðugur driver sem enginn mun dæma eftir að hafa séð hann þjóta niður brautina enda þarftu ekki lengur að leggja hraðasta dótið til hliðar þegar það fer að blása þar sem Defender stendur með þér þegar vindurinn og aðstæðurnar reyna að vinna á þér

13
5
0
3
PLAST
LUCID
Lucid er hálfgegnsætt og slitsterkt plast sem sameinar fallega áferð og mikla endingu. Það heldur flugeiginleikum sínum vel, jafnvel eftir mikla notkun. Lucid-útgáfur af diskum eru oft aðeins meira overstable en sambærilegar Fuzion-útgáfur, sem gerir þær að góðu vali þegar þú þarft öruggt og stöðugt kast.
3.490 kr
Vörunúmer: 101554

Litur:
Lucid Defender
Lucid Defender 3.490 kr

Dynamic Discs

Dynamic Discs var stofnað árið 2005 í Emporia, Kansas, og hefur þróast úr einfaldri byrjun yfir í eitt af leiðandi vörumerkjum í frisbígolfi. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval af diskum, töskum, körfum og aukahlutum fyrir leikmenn á öllum getustigum. Í samstarfi við Latitude 64° og Westside Discs hefur Dynamic Discs styrkt stöðu sína á heimsvísu og styður við frisbígolfið með hágæða vörum og viðburðum.