


KASTAPLAST MOOMIN 3-DISC SET
Nú mætast Múmínálfarnir og gæðadiskar frá Kastaplast í einum glæsilegum pakka. Þetta þriggja diska sett skartar myndum af ástsælustu persónum Múmíndalsins og er fullkomin kynning á frisbígolfi, hvort sem er fyrir algjöra byrjendur eða lengra komna.
Settið kemur í fallegum gjafakassa sem gleður augað. Ekki er aðeins um að ræða söfnunargrip heldur hágæða diska sem standast kröfur reyndra spilara. Hér færðu blöndu af vinsælustu plasttegundum Kastaplast sem eru þekktar fyrir einstaka tilfinningu og grip.
INNIHALD
- Reko (K3) Putter sem er þægilegur í hendi og frábær fyrir bæði pútt og stutt innáhögg
- Berg (K1 Soft) Einstakur Approach diskur sem er þekktur fyrir að stoppa nákvæmlega þar sem hann lendir
- Stig (K1) Fairway Driver sem er auðveldur í kasti og hentar vel til að móta línur á brautinni
EIGINLEIKAR
- Hönnun Sérstök útgáfa með Múmínálfunum (Moomin)
- Plast Blanda af K1, K1 Soft og K3 plasti fyrir fjölbreytta tilfinningu
- Notagildi Fullkomið sem gjöf, söfnunargripur eða byrjendasett
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.




Kastaplast












