
K1 Soft Berg X (B2B)
BERG X
Berg X er diskur sem hentar vel þegar stutt köst krefjast stöðugleika frekar en aukins krafts. Hann er mjög traustur í vindi og hviðum og lendir áreiðanlega án þess að fara mikið áfram eftir lendingu. Berg X er eins konar stóri bróðir Berg, liggur svipað í hendi og flugið er í sama anda, en diskurinn er mun harðari og gefur ekki eftir, sama hversu fast er kastað. Mikil mótstaða gegn snúningi gerir hann einnig að góðum kosti í köstum með hliðarkasti að körfu.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.


Kastaplast












