



K1 Idog
K1 PLAST
K1 er einstaklega endingargott plast frá Kastaplast sem býður upp á frábært jafnvægi á milli stífleika og mýktar. Þetta plast veitir spilaranum þétt og gott grip við allar aðstæður. Diskar í K1 línunni koma bæði í gegnsæjum litum og þéttari litatónum sem gera þá auðþekkjanlega á vellinum.
IDOG
Idog er traustur og stöðugur diskur sem nýtist vel þegar nákvæmni skiptir máli. Hann hentar sérstaklega í köst af teig á þröngum brautum þar sem mikilvægt er að halda disknum á réttri línu. Idog er einnig góður í lengri köst að körfu þegar þú vilt beint og fyrirsjáanlegt flug sem er auðvelt að treysta á.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið að fá vöruna senda eða sækja hana í verslun okkar að Silfursmára 2 í Kópavogi.





Kastaplast












