
K1 Hard Järn - Joseph Anderson Tour Series 2025 (B2B)
Joseph Anderson - Tour Series 2025
4.5
3
0
3
PLAST
K1 HARD
K1 Hard er með sömu fínu áferð og venjulega K1 plastið, en er ögn stífara og eyðist hægar. Þessi aukni stífleiki gefur diskinum örlítið meiri stöðugleika í fluginu. K1 Hard plastið er sérstaklega notað í „Tour Series“ útgáfur.
JÄRN
Järn er diskur sem hentar vel þegar spila þarf af yfirvegun og treysta á stöðugt flug. Hann heldur sér vel í mótvindi og beygir á fyrirsjáanlegan hátt í lokin, sem gerir hann sérstaklega hentugan í nákvæm approach-köst. Järn er góður kostur þegar mikilvægt er að halda disknum undir stjórn og lenda á réttum stað.
AFHENDINGARMÁTI
Í kaupferlinu getur þú valið um að fá vöruna senda eða sótt í verslanir okkar Silfursmára 2, Kópavogi eða Dalsbraut 1, Akureyri.
Við sendum frítt þegar pöntun fer yfir 10.000 kr.

Kastaplast












