Karfa

Karfan þín er tóm

Gold Extreme Burst Ballista Pro - Albert Tamm Team Series 2025 (B2B)

Ballista Pro er stóri bróðir Ballista, hannaður með auknum stöðugleika fyrir reynda spilara. Hann er fullkomin lausn ef þig vantar langdrægan disk sem getur þrætt þröngar brautir af öryggi. Með frábærri blöndu af hraða, stöðugleika og svifi er hann fyrsti kostur í öll löng köst þar sem nákvæmni og vegalengd skipta máli.

Albert Tamm - Team Series 2025
14
4
0
3
PLAST
GOLD
Gold Line er hágæðaplast. Uppistaðan er sama slitsterka plast og í Opto Line, en viðbætt efni bætir gripið án þess að draga úr endingu.
SÉRKENNI
BURST
Burst áferðin lífgar upp á diskana með blöndu af tveimur litum sem renna saman og mynda geislandi rákir út frá miðju. Þessi tækni tryggir að hver einasti diskur fær sitt eigið séstaka mynstur og litasamsetningu, sem þýðir að engir tveir diskar eru nákvæmlega eins og útlitið getur verið breytilegt á milli eintaka.
4.190 kr
Vörunúmer: GTS-BALLISTAPRO-MIX-B2B

Litur:
Gold Extreme Burst Ballista Pro - Albert Tamm Team Series 2025 (B2B)
Gold Extreme Burst Ballista Pro - Albert Tamm Team Series 2025 (B2B) 4.190 kr

Latitude 64

Latitude 64° er sænskt vörumerki sem framleiðir hágæða frísbígolfdiska fyrir alla leikmenn, hvort sem um er að ræða byrjendur eða atvinnumenn. Framleiðslan fer fram í einni fullkomnustu verksmiðju heims sem sérhæfir sig í frísbígolfi og er staðsett í Norðursvíþjóð, þar sem nákvæm verkfræði, nýsköpun og djúp ástríða fyrir íþróttinni sameinast. Latitude 64° leggur áherslu á að hanna diska sem stuðla að betra kasti, meiri nákvæmni og skemmtilegri leik þar sem gæðin eru í forgrunni og hver diskur er vandlega mótaður með leikmanninn í huga.