
INNOVA - GLOW CHAMPION SHRYKE
*ATH - Litur á disk/letri getur verið frábrugðin myndum*
Shryke er langdrægur og auðkastaður driver sem hentar breiðum hópi spilara. Létt sveigja í miklum hraða setur hann í svifstillingu, og ásamt mikilli loftaflfræðilegri skilvirkni skilar það ótrúlegri fjarlægð. Hægt fade í lok kastsins hjálpar líka til við að halda disknum á brautinni. Shryke minnir á vinsæla Tern en er hraðari og örlítið stöðugri í háum hraða.
Speed: 13, Glide: 6, Turn: -2, Fade: 2
GLOW CHAMPION PLASTIC
Glow Champion línan er gerð úr sama háþróaða og endingargóða plasti og Champion línan, með þeim aukabónus að hún glóir í myrkri. Glow Champion diskar eru auðþekktir á glærri, grænskærri áferð þeirra. Þeir eru mjög endingargóðir og auðvelt að sjá þá, sem gerir þá fullkomna fyrir Glow Disc Golf í rökkri eða myrkri.
