Karfa

Karfan þín er tóm

Exo Soft Tactic

Tactic er flokkaður sem pútter og approach-diskur, en hlutverk hans er fyrst og fremst að vera traustur diskur í approach-köstum. Hann er með lítið glide og áreiðanlega beygju í lokin, sem tryggir stöðuga frammistöðu við allar aðstæður. Tactic hentar einstaklega vel í stutt köst bæði með bakhendi og forhendi, og þegar mótvindur er til staðar er hann jafnframt traustur kostur í pútti.

4
2
0
3
PLAST
EXO SOFT
Exo er staðlað plast í Evolution línunni sem kemur í tveimur mismunandi stífleikum, „soft“ og „hard“. Plastið gefur frábært grip í öllum aðstæðum og eyðist smám saman við notkun sem breytir flugeiginleikum disksins með tímanum. Hard útgáfan er stífari í hendi og heldur lögun sinni lengur en Soft útgáfan.
2.590 kr
Vörunúmer: 100135

Litur:

Discmania

Discmania er alþjóðlegt frisbígolfmerki sem stofnað var árið 2006 af finnskum frumkvöðli. Þeir framleiða diska í eigin verksmiðju í Svíþjóð og reka skrifstofur í Finnlandi og Bandaríkjunum. Með vörulínum eins og Originals, Evolution og Active býður Discmania upp á fjölbreytt úrval fyrir leikmenn á öllum getustigum. Þeir leggja áherslu á nýsköpun og gæði og hafa markað sér sess sem eitt af leiðandi vörumerkjum í frisbígolfinu. Slagorð þeirra er „Reinvent Your Game“.